Main menu:
Upplýsingar um vörurnar
Upplýsingar
Dream-Eze
Dream-Eze AIO
Dream-Eze AIO bleyjurnar eru afskaplega rakadrægar bleyjur. Innra lag bleyjunnar er úr lífrænt ræktaðri bómull og ytra lagið er úr vatnsheldu PUL efni. Eins og með aðrar AIO bleyjur þarf ekki að nota nein innlegg í þessar. Dream-Eze vörurnar koma frá fyrirtækinu The natural baby company. Það þarf að þvo þessar bleyjur þrisvar fyrir fyrstu notkun og þær ná fullri rakadrægni eftir 6-8 þvotta. Frábærar bleyjur sem eru ótrúlega einfaldar í notkun!
Hér til hliðar má sjá þyngdartöflu fyrir Dream-Eze AIO bleyjurnar.
| Stærð | Þyngd(kg) |
| Small | 3,1 - 6,8 |
| Medium | 5,4 - 9,9 |
| Large | 8,6 - 13,1 |
| Extra large | 12,7 + |
Dream-Eze Fitted
Frábær hliðarsmellt fitted bleyja úr 100% lífrænni bómull. 6 laga innlegg er saumað öðru megin í bleyjuna sem gerir hana bæði mjög rakadræga og mjög fljóta að þorna. Þessar bleyjur eru mjög nettar og eiga að liggja neðan við nafla barnsins. Þær eiga að passa undir hvaða bleyjubuxur sem er. Þetta er vara frá The natural baby company.
Hér að neðan má sjá stærðartöflu fyrir Dream-Eze fitted bleyjurnar. Tölurnar sýna bleyju sem hefur verið þvegin. Til að mæla klofmál(enska=rise) er byrjað að mæla rétt neðan við nafla að framan, farið milli læranna og endað í sömu hæð og byrjað var að aftan. Munið að framkvæma þessa mælingu án bleyju.
| Stærð | Þyngd(kg) | Klofmál(cm) | Læri(cm) | Mitti(cm) |
| Small | 2,7 - 6,8 | 35,5 - 38 | 15 - 28 | 25 - 43 |
| Medium | 5,4 - 9 | 39 - 41 | 17,5 - 33 | 30 - 47 |
| Large | 8,6 - 12,7 | 8,6 - 12,7 kg | 23 - 35,5 | 31 - 48 |
| Extra large | 11,3 - 15,9 | 44 - 46 | 25 - 38 | 33 - 51 |
Sub-Menu: