Main menu:
Upplýsingar um vörurnar
Upplýsingar
Haute Pockets
Það eru til tvær tegundir af Haute Pockets bleyjum, annars vegar Haute Pocket hefðbundna bleyjan og hins vegar Haute Pocket bleyja með nýrri tegund af PUL efni sem "andar". Báðar eru þetta one size bleyjur sem þýðir að þær eru stækkanlegar og vaxa því með barninu þínu.
ATH. Að allar Haute Pocket bleyjur koma með tveimur microfiber innleggjum, einu minna og öðru stærra!
Nýja PUL efnið sem andar leyfir lofti að leika um litla bossa þó að þeir séu í bleyju. Þetta þýðir að minna er um bleyjuútbrot og þægilegra verður fyrir barnið að vera með bleyju. Vatnsheldni þessa nýja PUL efnis hefur verið prófuð á tilraunastofu. Þó af því að þetta er PUL efni sem "andar" leyfir það raka að gufa upp af bleyjunni. Ef þessi bleyja er höfð of lengi á og innleggin verða gegndrepa þá getur það orsakað að fötin virðast rök þegar þrýst er á bleyjuna. Þessi bleyja lekur þó alls ekki og er afskaplega góð fyrir börn sem eiga það til að fá bleyjuútbrot.
Traditionals bleyjan er alveg eins nema með hefðbundnu PUL efni. Ef þú getur ekki hugsað þér að bleyjan verði aðeins rök þegar ýtt er á hana þegar barnið hefur pissað þá er heppilegra fyrir þig að taka Traditionals útgáfuna.
Sub-Menu: