Main menu:
Þvottaleiðbeiningar
Haute Pockets þvottaleiðbeiningar
Vinsamlega þvoið fyrir fyrstu notkun.Þvoist eftir hverja notkun(bæði bleyja og innlegg).
Einfaldar leiðbeiningar:
1. Hendið hægðum í klósettið/skolið úr í sturtunni(mjólkurhægðir).
2. Fjarlægið innlegg úr bleyjunni.
3. Þvoið bleyjuna á 60-90°C með 1-2 tsk af neutral þvottaefni.
4. Stillið þvottavélina á extra skol til að vera viss um að ekkert þvottaefni hafi setið eftir í bleyjunni.
5. Þurrkið í þurrkara á lágum hita eða hengið til þerris.
6. Aldrei nota bleikiefni, mýkingarefni eða hvíttunarþvottaefni. Þetta eyðileggur bleyjuna þína og öll ábyrgð fellur þá úr gildi.
Þurrgeymið a.m.k. PUL efnið(þ.e. ekki láta það liggja í bleyti).
Á góðviðrisdögum mæli ég með að láta bleyjuna hanga úti í sólskininu ef þú þarf að losna við bletti! Svona af því að það er svo oft sól á Íslandi ;)
Sub-Menu: