Main menu:
Upplýsingar um vörurnar
Upplýsingar Knickernappies
Knickernappies vasableyjurnar eru nettar, hliðarsmelltar bleyjur. Innra lag bleyjunnar er úr mjög mjúku microfleece efni og ytra lagið er úr vatnsheldu PUL efni. Eins nettar og þær eru þá rúma þær samt næstum hvaða innlegg sem er, meðal annars prefold bleyjur!Teygja er bæði um læri og, mitti og bak. Framleiðandi ábyrgist eins árs ábyrgð á smellum og teygjum!
Hér að neðan má sjá stærðartöflu fyrir knickernappies vasableyjurnar. Lægri sentimetratalan sýnir stærð bleyjunnar þegar hún er óstrekkt og hærri talan sýnir bleyjuna í fullri strekkingu. Til að mæla klofmál(enska=rise) er byrjað að mæla rétt neðan við nafla að framan, farið milli læranna og endað í sömu hæð og byrjað var að aftan. Munið að framkvæma þessa mælingu án bleyju.
| Stærð | Þyngd(kg) | Klofmál(cm) | læri(cm) | Mitti(cm) |
| Small | 1,8 - 5,9 | 25 - 33 | 12,7 - 20 | 15 - 38 |
| Medium | 5,9 - 12,7 | 35,5 - 44,5 | 25 - 40,5 | 35,5 - 43 |
| Large | 9 - 15,9 | 40,5 - 51 | 25 - 46 | 40,5 - 51 |
Sub-Menu: