Main menu:
Upplýsingar um vörurnar
Upplýsingar
Knickernappies innlegg
Loopy-doo forþvegin innlegg
Rakadræg innlegg með tveimur lögum af hampi og öðrum tveimur af microfiber.Eiginleikar hampsins og micrifibersins sameinast í þessum innleggjum þar sem hampurinn tekur í sig mikinn raka og microfiberinn tekur fljótt í sig raka. Þar sem hampur inniheldur náttúrulegar olíur þá er best að þvo hann sér í fyrsta skipti. En þar sem þessi innlegg eru forþvegin, má byrja að nota þau strax án þess að þvo þau og skella þeim svo bara með hinum bleyjunum í næstu þvottavél. Þau þurfa þó nokkra þvotta til að ná fullri rakadrægni. Innleggin eru samuð í "hring" svo að þau eru mjög fljót að þorna.
Superdo forþvegin innlegg
Stóri bróðir Loopy-doo innleggsins! Þetta innlegg hentar vel börnum sem pissa mikið og einnig hentar það vel í næturbleyjuna. Það er gert úr sex lögum af hampi og tveimur lögum af microfiber. Hampurinn á þessum innleggjum er forþveginn eins og í loopy-doo innleggjunum svo að þau mega fara strax í vél með öðrum bleyjum. Nú er kominn tími til að hætta að troðfylla næturbleyjuna af innleggjum og kaupa sér Superdo innlegg!
Just-hemp innlegg
Þessi innlegg eru, eins og nafnið segir til um, bara úr hampi og engu öðru. Þetta eru nett þriggja laga hamp innlegg sem allir ættu að prófa!
Sub-Menu: