Main menu:
Hvernig virka taubleyjur?
Tilsniðnar bleyjur eða svokallaðar "fitted" bleyjur eru ekki vatnsheldar. Yfir þær þarf að nota vatnsheldar bleyjubuxur. Fitted bleyjur geta verið úr mismunandi efnum t.d. bambus, bómull, hampi, flónel og fleiru. Hlutverk fitted bleyja er að vera rakadrægar og hægt er að auka rakadrægni þeirra með því að setja í þær aukainnlegg(sem liggja þá við húð barnsins).
Hér til hliðar er dæmi um það hvernig fitted bleyja gæti litið út.